Það var mjög gaman að fá að sjá dömuna. Maður gat séð andlitsdrætti og alltsaman. Hún kúrði sig nú ansi mikið upp að naflastrengnum til að byrja með og vildi helst ekki sleppa honum en eftir að "ljósmyndarinn" hafði ýtt og djöflast á kúlunni sleppti hún loks strengnum og sýndi sig betur en þá með þótta og pirringssvip. Setti hreinlega í brýrnar. Hefur líklega fundist þetta óþarfa læti. Hún var annars rosalega spræk og stoppaði ekki allan tímann.
Og auðvitað er þetta fallegasta barn sem til hefur verið;)
Mér finnst nafnið sem við höfum ákveðið passa enn betur við hana eftir að hafa séð hana:) En það kemur allt saman betur í ljós seinna.
Hérna er hún að hjúfra sig upp að naflastrengnum
Hér er konan búin að hamast á bumbunni og raska rónni heldur betur. Eins og stelpan sé frekar örg yfir þessu ónæði bara.Hérna er brúnin aðeins að léttast aftur. Greinilega ekkert voðalega langrækin:)
Hér er hægt að sjá pjásuna og fæturna
Hér er hægt að sjá pjásuna og fæturna
Fyrir ofan: Aðeins að nudda augun. Hægt er að sjá að hún er einungis með 5 fingur á hendinni þannig að ekki erfir hún þá bæklun frá mér;) (á maganum hringast naflastrengurinn)
Fyrir neðan: að sitja fyrir á mynd.
Á myndum setur maður stút á varirnar:)
Átti erfitt með að velja úr þannig að ég setti bara nokkrar. Konan sagði að hún væri bara óvenju vel á sig komin m.v. ekki lengri meðgöngu, oft eru þau víst svo horuð á þessum tíma en þessi er víst bara nokkuð vel haldin. Vona nú samt að hún verði ekki eins og pabbi sinn.
8 ummæli:
Vá þetta er eitthvað svo ótrúlegt! Gaman að sjá þessar myndir, núna finnst mér að hún eigi bara að fara að koma. Allt of löng bið.
ekkert smá flottar myndir.. sammála birnu að þetta er alltof löng bið=).. sæt síðasta myndin, er eins og prinsessan sé að pósa =)
kv.lea
Æj hvað hún er fín!!! :D
Æðislegar myndir, skýrar og góðar og litla dúllan ekkert smá dugleg að pósa :)
Algert krútt, dugleg að setja stút á munninn. Er stelpan búin að vera að horfa á einhverja top model þætti?
já hún er algjör fyrirsæta:) ..sem er allt of langt í.
Hún er nú meira krúttið.....Eins og hin börnin í fjölskyldunni.Ég þarf bara að prufa svona aftur því það voru ekki svona myndir þegar ég var að vesenast í þessu...
Kv,Lilja
Liljaljos.bloggar.is
Frábærar myndir, vildi að þetta hefði staðið til boða þegar ég gekk með mín. Hún er æðisleg! Kv. Hrönn.
Takk takk :D
Já hún er sko æðisleg;)
Skrifa ummæli