miðvikudagur, maí 28, 2008

Tékkað á kyninu á morgun:D

Er búin að bíða eftir morgundeginum ansi lengi.
Við eigum tíma kl. 10:30 á LSP í 20 vikna sónarinn og fáum að vita kynið. Ég held að það sé stelpa og svona flestir aðrir.
Sú vísindalega niðurstaða byggir á því að stelpur eru mjög ráðandi í kringum okkur, aðallega í minni fjölskyldu...
Þanngi að nú eru s.s. síðustu forvöð að giska á hvort kynið þið haldið að þetta sé:)
Þið megið endilega segja frá því í kommenti hvað þið haldið.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég held að þetta sé stelpa=).. En afþví að ég er alveg viss um að þetta sé stelpa þá verður þetta pottþétt strákur, því ég hef oftast rangt fyrir mér með þetta =).. En annars er ég orðin voða spennt fyrir krílinu =)
Röggi veðjar á að þetta sé strákur =)
Kv. Lea og Röggi..

Nafnlaus sagði...

Ég sjálf held að þetta sé stelpa.
En hún Ólöf Jóna er alveg með það á hreinu að þetta sé strákur

gangi ykkur vel á morgun og Ólöf Jóna ætlar að hringja um leið og hún er búin í leikskólanum
kv Íris og co

Nafnlaus sagði...

Ég held alveg pottþétt að þetta sé strákur , miðað við kúluna/bumbuna á myndinni hér í síðustu færslu

Kv Arndís