Fór í sónar fimmtud. 3. apríl, þá komin 12 vikur og dag að auki og fékk þessar líka frábæru myndir. Allt leit vel út og barnið var spriklandi og sparkandi sem kom mér svakalega á óvart. Settur dagur er 15. október og verður þetta þar með flöktandi, óákveðin meyja...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Æðislegt!! :) Má ekki betur sjá en krílið sé bara strax farið að sjúga þumalinn ;)
Kveðja Anna
Það væri náttúrulega bara sparnaður í snuddum ef það getur vanið sig á það strax:)
Til hamingju Margrét mín. Meyja, ertu ekki að meina flöktandi vog?
Kveðja mamma
Ég er auðvitað ennþá agalega montin af hafa fengið að fara með. Gerði þetta svo miklu raunverulegra - ég verð móðursystir, það er aldrað!
Til hamingju Margrét mín, já sammála var ekkert smá skrítað sjá krílið svona snemma á fullri ferð og vera orðin svona "manneskjulegt" strax eftir nokrar vikur..
Guðrún H (nýbökuð móðir í annað sinn)
Takk f. kveðjurnar.
Jú auðvitað meinti ég Vog, ekki Meyja...
Skrifa ummæli