miðvikudagur, desember 28, 2005

Jólagjafalistinn 2006

Nú var ég að prófa að setja inn mynd með blogginu, sé ekki hvort það heppnaðist. En ef myndin kom að þá er hún af Ólöfu Jónu og er tekin á menningardag/nótt í Reykjavík. Þetta er tekið inni í skartgripaverslun sem tyrfði gólfið með fyrsta flokks grasþökumog baldursbrám. Ég myndaði villt og galið þarna og á meðan byrjaði Ólöf Jóna auðvitað að tína fínu blómin, en ekki hvað? Ég þurfti að "endurplanta" blómunum!
En flott útstilling, finnst ykkur ekki?


Þá er að komast mynd á þetta,3 hafa þreytt prófið og fengu þau eftirfarandi: Birna Rún 100 stig (af 100 mögulegum), Aldís og Bjöggi fengu bæði 70 stig. Ég bætti 10 stigum á Birnu Rún og Aldísi en svarmöguleikinn er rangur í spurningunni um dýraeignina. Bjöggi fékk engin 10 aukastig, hann svaraði því hvorteðer rangt.
Niðurstaðan er því sú að Birna Rún fær glæsilegustu jólagjöfina næsta ár.
Spurning hvað hinir fá! Mikið er þetta skemmtilegur leikur.

En að öðru. Fórum út að borða á Lækjarbrekku í boði Diddu frænku í gær. Hún býður alltaf til árlegrar veislu á afmælinu sínu. Þetta var ægilega fínt og flott alltsaman. Ég fékk mér svona þrírétta matseðil og byrjaði á rjómalagaðri humarsúpu og svo komu hvítlkauks-grillaðir humrar - afar ljúffengt. Í eftirrétt var svo ís. Bubbi fékk aftur á móti miklu betri forrétt en ég en vildi samt ekki skipta og var snöggur að éta hann allann áður en ég komst í hann. Þetta var samt ægilega gott og ég svaf til hádegis í dag enn á meltunni.

Já og fréttir: Ég er búin að setja íbúðina mína á sölu og er hún metin á 13,8 millur, sem er 6 milljónum meira en ég keypti hana á. En við ætlum hvort sem er í stærra þannig að það hrekkur skammt. Þið getið skoðað auglýsinguna á mbl undir tjarnarbraut- 13,8 millj. en íbúðin uppi er líka til sölu á litlar 34 millur!
Við stefnum á Hveragerði og erum með augastað á húsi sem hefur yndislega elhúsinnréttingu, 60 fm. girtum palli, tvöf. bílskúr, fínum garði og síðast en ekki síst, heitum potti! Á 27,4 millj.
Hugsið ykkur partíin sem væri hægt að halda!
Þetta er allt í athugun ennþá en það er gaman að láta sig dreyma.


Jæja, nú er nóg komið- munið eftir prófinu, ég er svo spennt að sjá niðurstöðurnar

P.s. hvað á að gera um áramótin? Við ætluðum í bústað en hann kostaði 30 þús!!! Ætli endi ekki bara með almenilegu partíi hér heima!

7 ummæli:

AP sagði...

jæja búin að taka prófið, gekk nú bara bærilega, flaskaði alveg á þessu með hundinn samt... en hey ég hef nú heldur aldrei séð hann... svo hélt ég endilega að þú hefðir skroppið til Grænlands um daginn... hmm...

Hveragerði segiru, líst vel á það, þá get ég komið í partý til þín og haft börnin í pössun hjá tengdó á meðan ;)

margrét sagði...

Já hugsaðu þér hvað það væri hentugt!
En í samb. við prófið að þá var sp. um hundinn ekki rétt hjá mér, ég á s.s 2 ketti og 1 hund. þannig að þá græðirðu 10 aukastig og færist upp í jólagjafalistanum.

Nafnlaus sagði...

Hæ, flott mynd, sérstaklega upplífgandi á þessum litlausa árstíma. Tók prófið og klikkaði á utanlandsferðum, nema hvað.

~ritarinn sagði...

þetta er náttúrulega skandall af verstu sort! ég var með 10 meira en aldís glataða, og er á undan henni í röðinni!!

ég er alveg tjúll....







(eða ekki)

margrét sagði...

Rólegur góði, Aldís fékk 10 aukastig út á dýraspurninguna svo þið eruð jöfn.

Nafnlaus sagði...

Ég vil fá önnur 10 stig vegna geðshræringrinnar sem ég varð fyrir á þessu spurninga ferli.

Ég er búin að vera í margra daga sjokki...

margrét sagði...

ég tek það til athugunar. Ég lofa að gefa þér ekki innpakkaðan hundakúk í jólagjöf næst.
Af því þetta ert þú:)