sunnudagur, desember 25, 2005

Blessuð jólin eru í hámarki sínu og afhverju eru þá svona lélégar myndir í sjónvarpinu?
Jólin í gær voru aldeilis fín, átum hjá mömmu og komum með okkar eigin hamborgarhrygg eftir yfirlýsingar þess efnis að það væri betra að eiga afganga heldur en ekki og þar fram eftir götunum. Fékk fullt af flottum gjöfum og kann ég þeim sem gáfu mér þær, bestu þakkir fyrir- þeir taki til sín, sem við á.

Erum búin að ná að halda áætlun í dag enda rak ég liðið áfram harðri hendi. Fyrst var það að sækja Ólöfu Jónu upp í Mosó og fara heim og opna þá pakka til Ó.J sem hún fær frá Pabba síns fjölskyldu og aðeins frá minni...
Svo var lagt af stað í förina miklu. Fyrst var farið til Sigrúnar systur Bubba, en dóttir hennar var 4 ára og þær Ólöf Jóna miklar vinkonur. Þau halda ekki jól því þau eru múslimar svo þetta er svolítið öðruvísi en gengur á flestum heimilum þessa dagana. Fínt að hafa afmæli bara í staðinn= 1 dags hátíðarhöld
Þvínæst fórum við til mömmu Bubba, eða ömmu Brendu... Ekki að hún brenni allt, heldur heitir hún semsagt Brenda. Amma Brenda hljómar samt stundum fyndið!
Eftir mikið hangikjötsát fórum við svo aftur í hangikjöt hjá föður mínum og eins og ég segi: í meira hangikjöt. Nú er hangikjöt auðvitað herramannsmatur, en öllu má nú ofgera. Án þess að ég vilji hljóma vanþakklátt.

Hef það annars dásamlegt núna, er komin heim og við eigum til haug af óhorfðum dvd-myndum og gnægð af konfekti ýmis konar.

Jæja, svona í lokin, ákvað að prófa að búa svona til og leyfa ykkur að spreyta ykkur þar sem ég veit að þið hafið ekkert betra að gera svona í jólafríinu.
Ykkur mun svo verða raðað í röð, ekki handahófskennt, á vinsældalistanum mínum eftir frammistöðu prófsins. Framtíðarjólagjafir verða svo í samræmi við það. Góða skemmtun
http://www.quizyourfriends.com/yourquiz.php?quizname=051225184349-484547

5 ummæli:

margrét sagði...

hhmmm, linkurinn virkar semsagt ekki, en þið eruð svo dugleg, þið finnið út úr þessu:)

Nafnlaus sagði...

Hnuss... Mér fannst þetta erfiðar og trikkí spurningar. Ég neita að viðurkenna að ég hafi bara fengið 60 stig..

Nafnlaus sagði...

Þetta er svindl próf. Ég svaraði öllu rétt en fékk vitlaust fyrir að segja að þú ættir tvo ketti og einn hund!!!
Svindl og svínarí

margrét sagði...

ég bæti við ykkur 10 stigum...
og málið dautt.

Nafnlaus sagði...

Einmitt... Ég á engan hund... Hvaða tegund er hundurinn okkar??

SVINDL!!!