Ég á afmæli í dag:D Er bara að taka því rólega heima og raða smátt og smátt inn í stofuna aftur eftir að nýja parketið kom. Er bara óvenju róleg yfir því að eiga afmæli og var bara "næstum því" farin að grenja í morgun- en gerði það ekki -jei fyrir mér:), en ég fæ alltaf einhvern svona amælisblús, veit ekki alveg afhverju, líklega v. þess að þetta er bara ekki eins merkilegur dagur og þegar maður var lítill. Á bara eitthvað erfitt með að aðlagast því. En ákvað f. nokkrum árum að reyna bara að hugsa sem svo að þetta væri ofurvenjulegur dagur.
Búin að fá dvd frá Birnu Rún og Stjána (örugglega svaka fín mynd -takk fyrir hana:) og rosa fínan blómvönd og sæta "ástin mín" bók frá Bubba. Reyndar gaf hann mér nákvæmlega svona bók f .2 árum svo ég mun skila þessari:) En það er hugurinn sem gildir.
Hann hafði ómögulega getað fundið upp á hverju hann gæti gefið mér í afmælisgjöf svo ég bjargaði honum þetta árið og ætla bara að kaupa mér fína skó í vikunni.
En það er bara af því að ég er tiltölulega nýkomin frá DK og var ekki að reka á eftir honum hvernig gengi að finna gjöf handa mér.
Hann sleppur ekki svona vel næsta ár, því get ég lofað. Það var einmitt þetta gjafaleysi frá Bubba sem kom "næstum" því hinu árlega afmælis-táraflóði af stað, en ég stappaði í mig stálinu og minnti mig á að ég er orðin stór og þarf ekki að væla þó að ég fái ekki pakka um leið og ég vakna.
Danmerkurferðin gekk bara nokkuð vel. Er loksins að jafna mig í skrokknum eftir allt labbið. Anna er náttúrulega orðin alveg þrælvanur labbari og var að stinga mig af með barnavagninn.
Fólk þarna labbar bara það sem það þarf, í strætó og annað. Þannig að ég skjögti með. Og ég meina sko skjögti. Bæjarferðirnar voru svo hrikalega erfiðar að ég vældi næstum því strax eftir fyrsta hálftímann. Var að drepast í vinstri fætinum út af þessari "taug" sem lætur mér vera illt frá fætinum upp í bak og mjöðm. haltra eins og ....ja- haltra bara:) Langaði rosalega að hafa staf eða göngugrind. Það hefði bjargað einhverju.
En ég keypti soldið af barnafötum, samt ekkert mikið þar sem ég fékk alveg helling af svona grunnfatnaði frá Önnu.
Fann líka æðislega óléttuföt, er sérstaklega hrifin af 2 bolum/peysu sem eru með svona ská sniði yfir brjóstin og ég get seinna meir tekið frá öðru brjóstinu í einu og þannig gefið brjóst án þess að þurfa að rífa allt upp um mig. Algjör snilld ef maður er einhversstaðar in public.Keypti líka 2 gjafa-haldara, annar er nú næstum of lítill (var samt það stærsta í HM) hinn er voða fínn úr Change en er að drepa mig eftir smástund því saumarnir eru þvílíkir innaná honum. Skrítið að hugsa ekki út í að ganga betur frá saumum/samskeytum í svona höldurum. En ég finn ráð við því:)
Keytpi líka eitthvað á Ólöfu Jónu og Bubba. Svo allir fengu eitthvað.
Jæja, ætla að skella mér niðr´í Bónus og bakarí og versla eitthvað smá f. gestina. Pabbi og Co og mamma ætla að kíkja á eftir.
Í kvöld förum við svo á uppáhaldsstaðinn okkar, Caruso. Þar ætla ég að éta á mig gat:D og koma svo heim og horfa á nýju myndina.
p.s. skrifað seinna: fékk pott (mikil búbót) og bók frá mömmu um andleg málefni og sætan vasa úr Pier frá Leu. Frá pabba og fjölsk. fékk ég slopp því þeim þykir sá ofurmjúki og þægilegi sem ég á ljótur... en ég ætla að eiga báða, veitir ekkert af þegar ég er að fara eignast litla gubbuvél
sunnudagur, júní 22, 2008
fimmtudagur, júní 12, 2008
Ekki alveg minn dagur...
Dagurinn í dag var einn sá misheppnaðasti sem sögur fara af.
Fyrsti hluturinn sem fór úrskeiðis var að það uppgötvaðist að ég hefði ekki fattað að minnka hádegispöntun á Hótel Reykholti úr 43 pers. í 29. Þetta fattaðist ekki fyrr en klst. var í matinn þannig að hótelið vill auðvitað fá matinn greiddan.
Klúður 2 fattaðist þegar ég var að fara í gegnum gamlan póst en kona frá Fosshótel hefur sent mér póst 29 maí og spurði þá hvort hópur nokkur væri staðfestur sem pantað var fyrir löngu f. jól. Þar sem ég þekkti ekki hópanafnið -aldrei séð það áður og hafði ekki vit á að biðja e-n að aðstoða mig við að finna út úr því hvaða hópur þetta væri eiginlega heimtar Fosshótel nú afbókunargjald fyrir allavega 20 herbergi sem er ansi mikið svo ekki sé meira sagt.
Mér leið svo ömurlega yfir þessu að ég ákvað að kíkja út og fór allavega með dvd-inn í viðgerð -sem var líklega það eina sem ég gerði af viti í dag. Svo ákvað ég að kaupa mér ís til að láta mér líða betur og þar sem ég er að keyra götu eina þar sem er 30 km hámarkshraði -talandi í símann -beltislaus, tek ég allt í einu eftir grænum station bíl sem tekur alla gangstéttina og um svipað leyti og ég er að átta mig á því að skottið er stútfullt af einhverju tækjdrasli blikkar rautt flass framan í mig.
Mér var allri lokið og gjörsamlega orðlaus yfir þessu.
Bubbi sagði í símanum að maður ætti eiginlega bara að taka frí og fara heim á svona dögum. En ég fór í Nóatún og keypti kassa af ís handa skrifstofunni. Reyndar var fólkið sem þurfti helst á ís-uppsleikingu að halda akkúrat ekki við. En við hin fengum okkur þá bara ís.
Eftir vinnu hef ég verið á fullu að undirbúa Köben ferðina mína á morgun. Vildi líka endilega slétta á mér harið sem tekur allt of langan tíma og vildi líka elda mat sem var nú eiginlega alveg óþarfi og allt of mikil orku-eyðsla. Special K er alveg nógu góður matur.
Er alveg uppgefin núna. Þessi bumba er farin að þyngja mig ansi mikið.
En s.s. já ég er að fara að skreppa til DK í 4 daga og hef hugsað mér að versla slatta af barnafötum og á sjálfa mig:) Eitthvað á Ólöfu Jónu og kannski eitthvað á Bubba.

laugardagur, júní 07, 2008
Jarðarber og kartöflur. Sumarið er víst komið:)

.jpg)
Þá er 19. vika og 21 vika komin hérna til samanburðar. Sá skelfilegi atburður átti sér stað að nú tek ég alltaf myndir á oddatöluvikum sem mér finnst eiginlega alveg agalegt...!!! en það er af því að það gleymdist að taka mynd eina "sléttu" vikuna og þá neyðist ég til að hafa þetta á "odda" vikum til að halda 2 vikna millibilinu...
Hérna sést allavega verulegur munur:)
Erum öll að koma til eftir jarðskjálftann en þetta hafði líklega aðeins meiri áhrif á mann en maður reiknaði með í upphafi. Við Bubbi höfum verið svo gríðarlega þreytt alla vikuna og sérstaklega fyrstu dagana á eftir. Þá vorum við nú bara algjörlega örmagna, án gríns. Núna erum við bara þreytt:)
Svo er maður svo taugaveiklaður í eftirskjálftunum, kom síðast einn í gærkvöldi þegar við vorum að glápa á imbann og svo einn í morgun þar sem ég lá í leti í rúminu. Maður svona rennir augunum yfir umhverfið, hlustar og finnur hristinginn og metur hvort maður eigi að skríða undir rúm eða drífa sig út eða bara sitja rólegur og bíða þetta augnablik þangað til allt kyrrist aftur.
En á heildina litið gengur nú allt vel. Meðgangan gengur vel og ég ætla að nýta helgina í að slappa af. Er reyndar að mana mig upp í að fara að planta kartöflum úti í garði, vona að ég sé ekki of sein að gera það. Já og svo þarf nú að vökva jarðarberjaplöntuna en ég keypti svona lítið plastgróðurhús um daginn í Europris til að gefa plöntunni meira skjól og hita. Er að reyna að ná henni jafngóðri og plöntunni sem var GRAFIN burt síðasta vor þegar bannsett vinnuvél kom að gera helv. bílastæðið f. pick-uppinn v. hliðina á skúrnum. Þetta var svo góð og gróin planta, sé ennþá eftir henni. Var sko búin að stinga í kringum hana og skrapp svo upp í Garðyrkjuskóla m. Aldísi á sumardeginum fyrsta og þá komu þessir iðnu menn og grófu allt í tætlur, ég bjóst ekki við þeim fyrr en daginn eftir, hélt að allt almennilegt fólk væri í fríi:)
miðvikudagur, júní 04, 2008
Skjálftamyndir og stelpan 20v. Allt á sama degi:)
Hérna eru litlar iljar.

Tolvuherbegið og búrið
Eldhúsið.Algjör myndaóreiða:)...þið þurfið sjálf að para réttan texta við myndirnar.
Nokkrar skjálftamyndir. Eldhúsið virkar nú alveg þokkalegt en bekkurinn og gólfið var nú samt þakið gleri. Skjálftinn sá svo um að loka aftur sumum skápunum á eftir sér:)

Eldhúsið.Algjör myndaóreiða:)...þið þurfið sjálf að para réttan texta við myndirnar.
Nokkrar skjálftamyndir. Eldhúsið virkar nú alveg þokkalegt en bekkurinn og gólfið var nú samt þakið gleri. Skjálftinn sá svo um að loka aftur sumum skápunum á eftir sér:)Ætla líka að setja hérna inn myndir af stelpunni okkar. Komin 21 viku í dag. Þetta styttist aldeilis. Bara 19 vikur eftir
laugardagur, maí 31, 2008
Enn allt í rusli
Erum rétt byrjuð á tiltekt en maður snýst aðallega bara í hringi... eins og maður viti ekki alveg hvar á að byrja. Rifum allavega teppið af stofunni í dag þar sem það var stútfullt af glersalla og við tökum ekki sénsinn á að láta prinsessuna tilvonandi skríða um í glerbrotum.Það var algjör glermulningur í því ekki séns að ná því öllu upp. Nú spyr maður sig hvernig gler getur brotnað svona á teppi....:)
jú, ástæðan fyrir því var að bókaskápurinn minn með öllu íslendingasagna-safninu innihélt líka öll spariglös heimilisins (þ.á.m. fíneríinu sem amma hefur verið að gefa okkur síðustu jól -rosalega þunn glös) og hann féll fram fyrir sig og allt brotnaði vel og vandlega í honum. Þegar við réttum svo skápinn við, opnuðust hurðarnar, (brotnuðu nú ekki nema 2 gluggar í honum) og hrúgan streymdi út í þessa líka svakalegu bóka-glerhrúgu. Þetta eru sjálfsagt 50 bækur og slatti af glösum.... ég get ekki hugsað mér að hafa smábarn skríðandi í þessu bráðum.
Fóum í mat hjá tengdó í gær og hún sýndi mér alveg hrikalega sætt sett sem hún er búin að prjóna handa barninu. Og hún sem ætlaði ekki að vita kynið þó að við ætluðum að vita það, spurði náttúrulega strax í gær um kynið... ég vissi að hún myndi gefa sig.
Fattaði hjá henni að maður er soldið klikkaður eftir skjálftann því ég gat bara einblínt á allt þessa fínu glermuni upp um allt og út um allt, og fannst algjört glapræði að hafa þetta svona allt á ystu brún nánast. úff, sá þetta allt fyrir mér í klessu. Hún er sko ekki með svona tré-stíl þannig að allt skrautið hennar færi í mola. Fólk í Reykjavík er bara í öðrum heimi fyrir mér. Hvernig getur allt farið í klessu hér en 35 km. sunnar stendur hvert einasta glersnitti. Jú hún tók nú samt eftir því að 2 myndir á vegg höfðu "eitthvað skekkst!!"
Hugsa líka hvernig umhorfs yrði hjá pabba ef það kæmi góður skjálfti þar. Fjúff maður, allt glingrið, postulíns og gler draslið sem Ólöf erfði frá mömmu sinni. Magnið er þvílíkt að það þyrfti sjálfsagt bara að taka stóra gluggann úr á annarri hæð og fá gröfu til að moka innan úr húsinu...
Jæja, ætla að koma mér inn og fá mér morgunmat. Sváfum aftur úti í camper. Allt í gleri ennþá um flest gólf inni. En í dag koma Birna Rún, Stjáni og mamma og ætla að hjálpa i tiltekt, það verður fínt:)
Þetta er mynd af skjálftavirkninni síðustu daga. Fann þenna síðasta stór í gær þvílíkt vel og var lögð af stað út úr annars nánast tómri stofunni.
föstudagur, maí 30, 2008
Og það er stelpa:) og svo kom skjálftinn.
Þvílíkur dagur!!!
Byrjaði yndislega með sól í heiði og mér hlakkaði svo til sónarsins að ég gat ekki einbeitt mér í vinnunni.
Fór svo í sónarinn kl. 10:30 við sáum litla pjásu svo varla var um að villast:) þannig að mér er óhætt að fara að versla í bleiku.
Svo var ég bara á bleiku skýi til kl að verða 4 en þá kom þessi blessaði skjálfti. Sem betur fer var ég í bænum að vinna og fattaði ekki einu sinni strax að þetta væri svona slæmt heima.
Kallinn fór heim á undan og fékk mesta sjokkið og var búin að taka til það versta (eftir að hafa tekið vandlega myndir af öllu auðvitað fyrst)
Þetta er sko tjón upp á nokkur hundruð þúsund ef allt er talið með. sprunga utan á húsinu, fullt af munum brotið, sjónvarpið á hvolfi, með kassann beyglaðan, en það virkar þó. Tölvurnar, myndavélar, o.fl. græjudót slapp sem betur fer. Sumir skápar voru nánast tómir og margar hillur dottnar á "andlitið" og c.a. 50% af því sem brotnað gat í þeim brotnaði.
EN, við sluppum samt ótrúlega vel miðað við marga hérna. Ég get t.d. ennþá státað af heilum innréttingum og get lokað öllum skáphurðum, f. utan eldhúsbekkinn sem er ansi rispaður eftir glösin sem komu niður úr skáp.
Fólk sem við þekkjum missti næstum allt sitt og gardínunarnar héngu ekki einu sinni uppi hjá þeim!þannig að þetta hefði getað verið mun verra hjá okkur.
Er komin yfir reiðina sem helltist fyrst yfir mig, að þetta skyldi hafa endilega þurft að gerast í dag þegar ég var svona hamingjusöm með stelpuna mina
Er líka bara þakklát fyrir að hafa ekki verið heima og fengið blómapott í hausinn. Ætla sko að endurskoða þessa skrautmunahillu sem er beint f. ofan eldhúsborðið. Hef samt alltaf passað að hafa aldrei neitt f. ofan rúm eða sófa.
Og enn nötrar allt og skelfur. Maður heyrði reglulega í kvöld svona nötur þegar myndirnar á veggjunum nötruðu upp við veggina. Svo er eins og húsið sé statt á risavatnsrúmi, svona bylgjast til...
Skelli kannski inn nokkrum myndum á morgun eða þegar ég hef tíma.
Ætli helgin fari ekki í tiltekt. Ætla að reyna að fá að hætta fyrr á morgun, þarf að fara í vinnuna og klára allt fyrir einn hóp sem kemur á þri. og svo ætla ég að reyna að fá að stinga af.
Þvílíkur dagur.
Ætla að fara að sofa núna. Ætlum sko ekki að sofa inni, er komin út í camper, svo nú erum við í útilegu úti í garði, eins og reyndar margir hvergerðingar í nótt:)
Umferðin á leiðinni í bæinn í kvöld var eins og á góðum föstudegi, bara í öfuga átt...

miðvikudagur, maí 28, 2008
Tékkað á kyninu á morgun:D
Er búin að bíða eftir morgundeginum ansi lengi.
Við eigum tíma kl. 10:30 á LSP í 20 vikna sónarinn og fáum að vita kynið. Ég held að það sé stelpa og svona flestir aðrir.
Sú vísindalega niðurstaða byggir á því að stelpur eru mjög ráðandi í kringum okkur, aðallega í minni fjölskyldu...
Þanngi að nú eru s.s. síðustu forvöð að giska á hvort kynið þið haldið að þetta sé:)
Þið megið endilega segja frá því í kommenti hvað þið haldið.

þriðjudagur, maí 20, 2008
Bumban
.jpg)
2 bumbumyndir sem ég þarf að setja inn hérna svo ég geti klínt þeim inn á spjallvef sem ég er á. Ekki hægt að setja inn myndir þar nema af vefnum.
Annars finnst mér sáralítill munur á bumbunni. Á annari myndinni er ég komin 14 vikur og á hinni 17 vikur. Það er varla nokkur munur. En mér finnst hún orðin stærri núna, er að detta í 19 vkurnar á morgun.
sunnudagur, maí 18, 2008
Rétt að láta vita af mér
Ætlaði bara rétt að skrifa nokkar línur...
Það hefur verið alveg kreisí að gera síðustu daga, mamma hélt upp á 50 ára afmælið sitt í gær og það var heljar veisla heima hjá þeim. Mjög gaman og mikið drukkið, þó ekki ég:)
Meðgangan gengur súper vel og ég er farin að finna svolitlar hreyfingar. Samt er ég ekki alveg að ná þessu öllu saman ennþá, ætli ég átti mig nokkuð endanlega á þessu fyrr en krakkinn verður kominn í fangið á mér...?
Það styttist í 20 vikna sónarinn og þá ætlum við eins og fyrr segir að fá að vita kynið.
-Spennandi!!
Nýja vinnan gengur vel, alveg fullt af nýju að læra og á föstud. hætti stelpan sem ég tek við af, þannig að hér eftir er ég ein á báti með amerísku og norrænu hópana... soldið skerí tilhugsun en þetta reddast. Það versta er að f. helgi var e-mailinu sem ég hef notað í 3 vikur lokað (og þar með lokaðist ég frá öllum þeim sem ég á í samskiptum við- ekki hentugt, þar sem vinnan gengur út á netsamskipti...) Ég átti nefnilega að fá mitt eigið e-mail loksins, en það virkar ekki enn og ég hef s.s. ekki lengur þetta gamla. Ég gat lítið annað gert til kl. 17 á föstud. en að tína til bæklinga og föndra "welcome" skilti f. bílstjórana.
Á meðan halda hinar ýmsu ferðaskrifstofur um heim allann að ég sé bara ekkert að nenna að svara þeim.
Ég geri e-ð drastískt á morgun ef þetta verður ekki komið í lag.
p.s. Bubbi hefur gert okkur að meðlimum nr. 454 í hinu virta félagi: "Húsbílafélaginu" um daginn.
Hann datt í það þar sem við vorum stödd í útilegu með þeim upp í Hvalfirði um daginn og á meðan ég svaf áhyggjulaus, vitandi það að hann gæti sko engum peningum eytt á svæðinu þar sem enginn var barinn né nokkur tækifæri til fjárútláta, tókst honum að eyða 4000 kr. í meðlimagjald félagsins. Við höfum fengið senda límmiða og svona hvíta tölustafi til að líma í framrúðuna... úff, hvað við erum orðin gömul.

laugardagur, maí 03, 2008
Fyrsta "útilega" ársins:)
Sóttum camperinn sem kom mjög vel undan vetri 1. maí og erum að fara að kíkja í fyrstu ferð ársins. Veit nú ekki hvort við verðum eins dugleg að ferðast í ár og síðasta sumar. Þá fórum við hverju einustu helgi (og ég lýg því ekki:) þar til um verslunarmannahelgina, eftir það fórum við einu sinni á einhverja daga í Þorlákshöfn í lok ágúst og svo fór hýsið í geymslu.
Stefnan er tekin eitthvað austur.
Annars er það líka að frétta að ég er komin í nýju vinnuna og líkar mjög vel. hef verið að leysa ýmis verkefni f. hinar stelpurnar á skrifstofunni og það hefur verið mjög lærdómsríkt. Hef t.d. lært að: gera aksturskýrslur f. bílstjórana, vouchera, leiðarlýsingu f. leiðsögumennina og ýmsar nýjar skammstafanir:)
Það er auðvitað eitt challenge þarna en það vinnur þarna sjálfstæðismaður sem finnst ekki mikið til kennarastéttarinnar koma... Við erum samt orðin ágætis vinir;)
Ólöf Jóna er búin að vera að rifna úr spenninga að komast af stað en hún kom með að sækja hann á fimmtud. og hefur beðið eftir brottför stíft síðan þá.
Stefnan er tekin eitthvað austur.
Annars er það líka að frétta að ég er komin í nýju vinnuna og líkar mjög vel. hef verið að leysa ýmis verkefni f. hinar stelpurnar á skrifstofunni og það hefur verið mjög lærdómsríkt. Hef t.d. lært að: gera aksturskýrslur f. bílstjórana, vouchera, leiðarlýsingu f. leiðsögumennina og ýmsar nýjar skammstafanir:)
Það er auðvitað eitt challenge þarna en það vinnur þarna sjálfstæðismaður sem finnst ekki mikið til kennarastéttarinnar koma... Við erum samt orðin ágætis vinir;)
þriðjudagur, apríl 22, 2008
Fyrsta mæðraskoðun í dag:)
Jæja, þá hef ég prófað svona mæðraskoðun.
Eins gott að einhver sagði mér frá því að svoleiðis þyrfti ég að fara í.. ég get svo svarið það, að ég hélt að ég ætti bara að mæta í þessa 12 og 20 vikna sónara og svo í einhverjar skoðanir þegar ég væri komin á 7-8 mánuð... Mikið hafði ég rangt fyrir mér.
Ég mætti s.s. í morgun á heilsugæsluna í Hveragerði og er hjá ágætis ljósmóður sem heitir Sigrún.
Ég fékk að heyra hjartsláttinn en var ekki farið að standa á sama þar sem hún ætlaði aldrei að finna hann, en svo loksins heyrðist hann:) Líktist hestabrokki.
Svo voru teknar blóðprufur, mældur blóðþrýstingur og pissað á strimil til að athuga prótín og sykurmagn líkamans. Allt kom vel út. Á reyndar eftir að fá að vita úr blóðprufum, þar sem athugað var m.a. hvort að ég hafi mótefni gegn rauðum hundum eða sé með sýfilis. Vona að það síðasttalda sé ekki til staðar;)
Næst á dagskrá er svo 20v. sónarinn 29. maí en þá fáum við að vita kynið. Það verður spennandi:)
Er að klára A4 vinnuna en ég á bara 2 daga eftir. Yfirmannsbeyglan sem er kona fer svo í taugarnar á mér (það er algjörlega gagnkvæmt) að við erum hættar að yrða á hvor aðra. Ég fer bara í pásu eða læt mig hverfa inn í búð ef hún slæðist þarna inn. Sem gerist sem betur fer mjög sjaldan. Man ekki hvort að ég hafði lýst því hér en ástæða alls þessa er þegar ég tilkynnti óléttuna komin 12 vikur. Hún algjörlega bilaðist og benti mér á að ALLIR í fyrirtækinu myndu nú fá að vita að ég væri óheiðarleg og kæmi ekki hreint fram þar sem ég hefði vitað að ég væri ólétt þegar ég byrjaði þarna (algjörlega mín mistök að nefna það...) Reglugerð segir að konum beri ekki skylda til að tilkynna óléttu fyrr en á 32 viku svo að ég var bara nokkuð tímanlega myndi ég segja:)
Reyndar vorum við farnar að pirra hvor aðra aðeins áður en ég tilkynnti óléttuna, það má segja að þetta hafi byrjað á degi 2 þegar ég heimtaði sömu laun og höfðu verið nefnd í atvinnuviðtalinu, en hún ætlaði að bjóða mér 15 þús. kr. minna þegar á hólminn var komið. Ég hafði allavega betur þá þar sem ég stóð fast á mínu og lét í ljós að ég myndi ekki vinna þarna fyrir minna en talað var upphaflega um. Hún varð aldrei söm eftir þetta.
jæja, þetta er nóg í bili.
Góðar stundir:)

miðvikudagur, apríl 16, 2008
14 vikur komnar

Mér finnst tíminn silast áfram. En samt tikka vikurnar inn -ein í einu (líklega ekki við öðru að búast...) og nú er ég komin 14 vikur. Sem þýðir að það eru 26 vikur eftir...
Komin smá kúla og naflinn strax orðin útstæður. Ferlega fyndið þetta með naflann. Tókst í fyrsta sinn ever að koma naflanum á rönguna um daginn og fann óvæntan glaðning, gamlan fílapensil í botninum, hverjum hefði dottið það í hug...
Annað merkilegt er að ég er komin úr barmstærð 85B í 90D, stökk barasta yfir C-ið eins og ekkert væri. Soldið svakalegt verð ég að segja.
Bíð spennt eftir því að fara að finna hreyfingar barnsins. Þær ættu að fara að finnast svona hvað úr hverju. Kannski í næstu viku ef ég verð heppin:)
Næst á dagskrá er að koma sér í gang með skrappið. Er búin að sanka að mér öllum efnivið til slíkrar bóka/albúmsgerðar en kem mér ekki í að byrja...

Myndin var tekin um páskana en þá styttum við okkur stundir með þessu 2000 stykkja púsli.
laugardagur, apríl 12, 2008
Ný vinna
Það er allavega skemmst frá því að segja að ég er komin með nýja vinnu enda hef ég leitað að einhverju öðru en afgreiðslunni (já Aldís ég þjáist líklega af menntasnobbi...:) síðan ég byrjaði í A4, og nú er ég komin inn hjá Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar. Þar verð ég í afleysingum og undidrbúningsdeild (minnir mig að það heiti) þar til ég fer í fæðingarorlof. Konan sem stjórnar þessu man eftir Helgu ömmu og ég er viss um að það hefur hjálpað til, en ég skreytti aðeins þegar hún spurði hvort ég hefði reynslu af ferðamálum og ég sagðist hafa hjálpað til í heimagistingu ömmu minnar á Otrateignum þegar ég var yngri. Ég var nú reyndar það ung að ég flæktist nú bara fyrir... en ég var þarna:)
Ég byrja í nýju vinnunni næstu mánaðarmót og hlakka mikið til.
Þetta held ég að sé talsvert skemmtilegri vinna heldur en pennavinnan. Vinnutíminn er frá 9-17 og frí flestar helgar nema eitthvað sérstakt sé.
Læt hérna fljóta með eina mynd af Ólöfu Jónu tannlausri:) Það vantar s.s. tvær í neðri góm, hélt ég ætti betri mynd af tannleysinu en finn hana ekki..
föstudagur, apríl 04, 2008
12 vikna sónar.
Fór í sónar fimmtud. 3. apríl, þá komin 12 vikur og dag að auki og fékk þessar líka frábæru myndir. Allt leit vel út og barnið var spriklandi og sparkandi sem kom mér svakalega á óvart. Settur dagur er 15. október og verður þetta þar með flöktandi, óákveðin meyja...
mánudagur, september 17, 2007
tæknin í útrás
| Nú er ég komin með myspace eða http://myspace.com/verahvergi og verið bara velkomin. Af mér er aðallega að frétta að nú er biðtími næstu 2 vikur. Þeir skilja sem eiga það skilið... humm. |
laugardagur, september 08, 2007
Hundurinn dáinn.
Jæja, þær hörmungar gengu yfir heimilið í vikunni að Díkó okkar fékk loksins þann endanlega dóm að vera ekki húsum hæfur. Kvikindið virtist aldrei ætla að vitkast og eftir ófá geðveikisköst mín og Bubba yfir aðkomunni í þvottahúsinu og í búrinu var sú ákvörðun tekin að aflífa greyjið. Seinnipart sama dags og ákvörðunin var tekin var ég búin að draga í land og gat ekki hugsað mér þetta en Bubbi hélt þessu til streitu og upp í sveit fór hann með hundinn og er nú grafinn einhversstaðar austur í Hruna. Mikil ósköp er ég búin að grenja yfir þessu. En svona er víst lífið. Ég er með hrikalegt samviskubit yfir því að hafa ekki bara haldið áfram að fórna mér við að þrífa upp drulluna eftir hann þegar hann var búin að stinga af, komast í rusl einhversstaðar og étið hvað sem er. Hann hefði kannski verið betri ef við hefðum sinnt honum betur og unnið minna. En þessu fylgir gríðarleg ábyrgð og það er greinilegt að hún var ekki hugsuð til enda... Auðvitað kenni ég Bubba um mest allt. Það var nú hann sem vildi hundspottið til að byrja með, fékk það í gegn að lokum og var svo búin að dömpa mest allri ábyrgðinni á mig áður en langt um leið. En eins og sannri konu sæmir sé ég um samviskubitið eftir þetta... En nú þarf að komast yfir þetta og minnast hans bara með gleði. Því eitt er víst, glaðari og fallegri hund hef ég aldrei þekkt. |
föstudagur, ágúst 24, 2007
Ýmislegt
Ég er að reyna að bæta mig í blogginu og hér kemur eitt lítið blogg ásamt einni sætri mynd af frænknunum Söru og Ólöfu Jónu. Um helgina eru Blómstrandi dagar og það er heilmikið um að vera. Ég ætla að mæta á markaðinn sem verður við skólann á laugardaginn og svo langar mig á bókamarkað og myndlistarsýningar líka. Í fyrra gerði ég fín kaup á þessum markaði en bestu kaupin voru án efa myndin Stella í orlofi sem við skemmtum okkur mikið yfir. Í gær byrjaði ég í jóga og það er var alveg hreint yynnnndislegt. Ég ætla mér að stunda þetta í vetur og koma betra jafnvægi á allt kerfið:) Og ekki er þetta dýrt (er reyndar orðin frekar firrt held ég...) 20 þúsundkall fram að jólum. Fyrir þá sem muna eftir Kára sem ég var með frá 16 ára til 20 að þá var pabbi hans að deyja og ekki var hann nú gamall blessaður kallinn. Kannski á milli 55 og 60 ára. Ferlegt að heyra þetta. Hann var búin að vera mjög veikur lengi eftir heilablóðfall fyrir 2-3 árum. Skólinn er byrjaður og þetta fer ágætlega af stað. Mér finnst samt eins og þetta er næstum óyfirstíganleg vinna og finnst að ég sé ekki að afreka neitt sérstakt en þetta er nú bara rétt farið af stað og ég er enn bara að kynnast krökkunum en ég er með nýjan bekk. Er að hugsa um að reyna að minnka kröfurnar á mig og byrja á að kynnast krökkunum og afhenda lestrarbækur... |
sunnudagur, ágúst 19, 2007
Menning & Adrenalínsjokk
| Menningarnótt er liðin og við eyddum deginum í Viðey og dántán. Það var rólegt og gott í Viðey og ég komst að því að í gamla daga (fram á síðustu öld) var byggð þarna sem nefndist þorpið. Ég komst líka að því að Eykt, byggingarfyrirtæki nokkuð reyndi að kaupa eyna fyrir ekki alls löngu til þess að reisa þarna ellimannablokkir og smala gamlingjunum þarna út. Þá hefði væntanlega verið komið fyrir brú og læti..... Sumum er EKKERT heilagt. En sem betur fer neitaði Reykjavíkurborg. Reyndar eru þeir farnir að koma fyrir listaverkum þarna eins og ferlíkinu hans Ólafs Elíasarsonar. Þó maðurinn sé snillingur og geri flott verk að þá er alveg óþarfi að láta þetta tróna á toppnum á Viðey. Þetta er ekki alveg að falla inn í umhverfið. Og svo er víst verið að fara að koma fyrir einhverri bölvaðri súlu frá Yoko Ono upp á fleiri fleiri metra. Þetta er ekki alveg að passa inn. En annars hefur staðnum verið haldið nokkuð ósnortnum (miðað við framkvæmdir annarsstaðar...) sem er vel. Í miðbænum var ekki eins rólegt. Ég gerði þau mistök að fara með hundinn í bæinn og geri það ekki aftur. Ég er með fleiður á hnúunum eftir ótal rikkingar hundsins, þar sem ýmislegt heillaði forvitin hund. Ýmsar kræsingar lágu í götunni, fullt af öðrum hundum hittum við og ótal börn pikkuðu og potuðu í hann við góðar undirtektir(ekki minna þó). Ég reyndi sem ég gat að halda honum nálægt mér með því að vefja ólinni um hendina á mér og stytta þannig í bandinu en uppskar þá bara eins og ég sagði áður: fleiður. Hitti aðeins á Sigrúnu og fjölskyldu en eirði engu. Hafði ekki þolinmæði í neitt lengur en þetta lagaðist allt þegar ég hitti mömmu og Bigga sem tók við hundinum. Enda mátti vart tæpara standa, ég var að missa það... Mamma gaf okkur Ólöfu Jónu ís eftir að við skoðuðum okkur aðens um niðri í myrkrinu í þjóðveldiskjallaranum þarna á hótelinu og svo sátum við á góðum stað í rúma klst. á Ingólfstorgi að glápa á mjóa gellu í litlum fötum dansa indverska dansa og svo var danshópurinn hennar mömmu með línudans. (hún var reyndar ekki með núna því hún fékk blóðtappa í löppina um daginn) Þetta endaði s.s bara ágætlega. úffpúff. Á föstud. sl. bauð ég Bubba í river-rafting á Hvítá. Hann átti s.s afmæli á fim. Það var ágætis fjör en ég hefði viljað meira action í flúðunum, sem voru frekar slappar að mínu mati. Ég ákvað svo að stökkva ef klettinum en hægt var að velja 3, 5 eða 7 metra hátt stökk og mér fannst að ég mætti hundur heita ef ég þyrði ekki að stökkva þessa skitnu 3 metra. Ég ætlaði aldrei að þora en lét svo Bubba stökkva á undan (þegar hann var búin að fara 7m. stökkið sitt) og byrjaði svo að garga þarna uppi þar sem ég stóð, gargaði svo aftur, stökk og gargaði alla leið ofaní á. Þar fékk ég sjokk og ætlaði ekki að geta andað þegar ég kom upp aftur. Þessu hef ég aldrei lent í áður, og ætla að sjá til þess að ég geri aldrei neitt svona aftur sem ég er ekki tilbúin í. Maður á ekki að pína sig til að gera eitthvað sem maður er hræddur við. Ég þjáist af lofthræðslu og auk þess er ein af mínum stærstu hræðslum að drukkna, hlýt að hafa drukknað í fyrra lífi. Ég kom t.d blá út af Titanic hér um árið því ég hélt alltaf í mér andanum þegar Jack og gellan voru í kafi, ógeðslegt. En ég s.s náði varla andanum því ég andaði svo grunnt og hratt. Svona eins sjúklingarnir í Bráðavaktinni þegar lungun eru fallin saman og það eina sem getur bjargað þeim er að stinga gat á hálsinn. Við erum að tala um að lungun öskruðu á loft og það hvein svo hátt í mér í allir heyrðu og gædinn sagði að ég þyrfti ekki að skammast mín, því stuttu áður hefði víst verið 150 kg maður sem kom grenjandi á land aftur.... ég var ekki að hugsa um skömm þarna, heldur hugsaði ég um hversu vitlaus ég væri að gera eitthvað svona... Svo meig ég NÆSTUM því á mig! Bubbi krækti í mig og sagði mér að slaka á. SLAKA Á í algjöru kulda og hræðslusjokki. Svo byrjaði ég að hlæja þegar ég komst upp á land....!!! Bubbi fræddi mig sposkur um að þetta væri adrenalínið og var loks á heimavelli í útskýringum um viðbrögð mín við einhverju. Annars skilur hann yfirleitt lítið af viðbrögðum mínum við ýmsu... ;/ jæja, nóg í bili |
miðvikudagur, ágúst 08, 2007
Sumarmyndir
Buhu, vinna á morgun.
| O.M.G Vinnan byrjar á morgun. Ég er engan veginn undirbúin undir það. Hitti kennara úti í Bónus áðan og við fengum báðar hroll yfir tilhugsuninni um vinnu á morgun. Oj bara. En maður verður nú að reyna að vera jákvæður og hugsa sem svo að það eru nú enn eftir nokkrar ágústhelgar sem verða víst að teljast með sumrinu þó ég sé aftur mætt í skólann. Mikið væri nú gaman að vera að fara bara sjálfur í skóla... Fyrir síðustu helgi festum við Bubbi kaup á Enduro hjóli fyrir mig. Fyrir þá sem vita ekki hvað Enduro er , þá er það svona torfæru hjól eða stundum kallað krossari (held ég) Ég er búin að fara nokkrar styttri ferðir á því og byrjaði á því að hjóla frá Stokkseyri niður í fjöru, fram hjá Litla Hrauni og allt. Fannst samt illa gert að bruna fram hjá Hrauninu og glenna þetta framan í aumingja fangana. Sú ferð gekk ágætlega en ég var samt næstum farin að grenja þegar við vorum búin að hökta svolítinn spöl á hrikalega grófum stein-stíg. Ég réði bara alls ekki við hjólið en djöflaðist samt áfram þó ég fyndi ekki fyrir höndunum á mér lengur. Var farin að íhuga hvað þetta hefðu verið slæm kaup þar sem ég einfaldega gæti þetta ekki. En síðan hef ég ekki farið á svona hræðilegan stíg og ég skemmti mér t.d mikið betur í torfærubraut sem var fyrir utan Flúðir um helgina. Þar var líka í lagi að detta, bara mjúkur sandur undir. Já við eyddum s.s verslunarmannahelginni á Flúðum. Þar var dúndurveður og erum við fegin að hafa ekki stigið fæti norður á land. Ætla að koma inn mynd af mér og hjólinu fljótlega. |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)